Um okkur
Við trúum því að góð verkfæri séu lykillinn að góðu handverki. Hjá okkur færðu faglega brýningarþjónustu þar sem nákvæmni, ástríða og gæði eru í fyrirrúmi.
Beittir hnífar – brýningar og verslun
Beittir hnífar var stofnað árið 2022 af Hafþóri Óskarssyni, matreiðslumanni með ríka þekkingu og ástríðu fyrir vönduðum hnífum og faglegri hnífabrýningu. Hafþór hefur jafnframt lokið sérhæfðu námi í hnífabrýningu hjá UK Sharpening Training School, þar sem hann hlaut ítarlega þjálfun í faglegum aðferðum við brýningu, viðhald og umhirðu hnífa.
Markmið Beittra hnífa er að veita faglega brýningarþjónustu og bjóða upp á vandaðar vörur á sanngjörnu verði, þar sem gæði, nákvæmni og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.
Allir hnífar eru brýndir á blaut- og demantssteinum með nákvæmlega útreiknuðum gráðuhalla sem tekur mið af gerð og notkun hvers hnífsblaðs. Að brýningu lokinni eru hnífarnir fínpússaðir á japönskum blautsteini og stroppaðir á leðri til að tryggja hámarks skerpu, betri endingu eggjarinnar og framúrskarandi skurðargetu.
Við nýtum sérhæfð tæki og vélar til að tryggja vandaða og nákvæma brýningu.



