Previous
Previous Product Image

🔥 NÓVEMBERTILBOÐ – UNOX ONE gufusteikingarofn með 7 hillum

1.390.000 kr.
Next

Zanussi Professional Húdd Uppþvottavél LS9

995.000 kr.
Next Product Image

Zanussi Professional Undirborðs Uppþvottavél LS5

545.000 kr.

Zanussi Professional Undirborðs Uppþvottavél LS5

545.000 kr.

Vörunúmer 400304

Öflug og tölvustýrð atvinnuuppþvottavél fyrir 50 × 50 cm uppþvottagrindur. Vélin býður upp á tvö þvottakerfi, 120 og 180 sekúndur, og afkastar allt að 30 grindum á klukkustund. Bilanagreiningarkerfi auðveldar eftirlit og notkun.

Öflug þvottadæla og snúningssprautuarmar efri og neðri tryggja góðan þvotta- og skolárangur. Innbyggður þrýstiketill tryggir réttan hita og þrýsting í lokaskoli, en vatnsnotkun þar er aðeins 2,1–2,4 lítrar. Vélin tekur inn heitt vatn, allt að 55–65 °C.

Vélin er úr ryðfríu AISI 304 stáli, með tvöfaldri, einangraðri hurð og færanlegum síum. Hún kemur með innbyggðum dælum fyrir þvottaefni og gljáaefni ásamt affallsdælu. Sjálfvirkt hreinsikerfi fer í gang þegar slökkt er á vélinni. Einnig eru innbyggð Wi‑Fi- og Bluetooth-tenging fyrir app.

Tæknilegar upplýsingar

  • Þvottakerfi: 120 og 180 sekúndur
  • Afköst: allt að 30 grindur á klukkustund
  • Grindarstærð: 50 × 50 cm
  • Hljóðstig: 70 dBA
  • Afl: 5,35 kW
  • Rafmagn: 400 V, 3N, 50 Hz
  • Mál (H × B × D): 820 × 600 × 610 mm
  • Hægt er að breyta vélinni í einsfasa gegn hóflegu gjaldi
  • Öll verð eru með virðisaukaskatti.

    Flutningur innanlands og uppsetning eru ekki innifalin í uppgefnu verði.

    Greiðsluskilmálar: 50% greiðist við staðfestingu pöntunar og 50% við afhendingu.

    Viðgerðarþjónusta

    Rafmiðlun ehf. sér um allar viðgerðir og þjónustu á stóreldhústækjum okkar og tryggir faglega þjónustu og áreiðanlegt viðhald.

Setja á óskalista
Setja á óskalista
SKU: 400304 Category:
Trust Badge Image
Description

Description

Vörunúmer 400304

Upplýsingarblað
Bæklingur

Shopping cart

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping