Zanussi Professional Undirborðs Uppþvottavél LS5
Zanussi Professional Undirborðs Uppþvottavél LS5
545.000 kr.
Vörunúmer 400304
Öflug og tölvustýrð atvinnuuppþvottavél fyrir 50 × 50 cm uppþvottagrindur. Vélin býður upp á tvö þvottakerfi, 120 og 180 sekúndur, og afkastar allt að 30 grindum á klukkustund. Bilanagreiningarkerfi auðveldar eftirlit og notkun.
Öflug þvottadæla og snúningssprautuarmar efri og neðri tryggja góðan þvotta- og skolárangur. Innbyggður þrýstiketill tryggir réttan hita og þrýsting í lokaskoli, en vatnsnotkun þar er aðeins 2,1–2,4 lítrar. Vélin tekur inn heitt vatn, allt að 55–65 °C.
Vélin er úr ryðfríu AISI 304 stáli, með tvöfaldri, einangraðri hurð og færanlegum síum. Hún kemur með innbyggðum dælum fyrir þvottaefni og gljáaefni ásamt affallsdælu. Sjálfvirkt hreinsikerfi fer í gang þegar slökkt er á vélinni. Einnig eru innbyggð Wi‑Fi- og Bluetooth-tenging fyrir app.
Tæknilegar upplýsingar
- Þvottakerfi: 120 og 180 sekúndur
- Afköst: allt að 30 grindur á klukkustund
- Grindarstærð: 50 × 50 cm
- Hljóðstig: 70 dBA
- Afl: 5,35 kW
- Rafmagn: 400 V, 3N, 50 Hz
- Mál (H × B × D): 820 × 600 × 610 mm
- Hægt er að breyta vélinni í einsfasa gegn hóflegu gjaldi
-
Öll verð eru með virðisaukaskatti.
Flutningur innanlands og uppsetning eru ekki innifalin í uppgefnu verði.
Greiðsluskilmálar: 50% greiðist við staðfestingu pöntunar og 50% við afhendingu.
Viðgerðarþjónusta
Rafmiðlun ehf. sér um allar viðgerðir og þjónustu á stóreldhústækjum okkar og tryggir faglega þjónustu og áreiðanlegt viðhald.
- Sími: 540-3509
- Netfang: [email protected]





